Kæru samherjar
Þá líður að því að við hittumst til þess að stofna samtök okkar Til vinstri við ESB. Ekki seinna vænna því utanríkisráðherra hefur nú lýst því yfir að senn líti dagsins ljós stjórnarfrumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Við höfum pantað lítinn sal á Horninu í Hafnarstræti og reiknum með því að hefja fund okkar klukkan 14:00 næstkomandi laugardag. Við reiknum með því að fundurinn standi ekki lengur en í hálfan annan tíma og verði lokið eigi síðar en kl 16.00.
(Zoom linkur fyrir þá sem komast ekki en vilja fylgjast með fundinum)
Hægt verður að kaupa einhvern snarlmat á Horninu sem kemur sér vel fyrir þau sem koma beint af fundi Ögmundar Jónassonar í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem gert er ráð fyrir að standi frá 12:00 til 13:30. Fundurinn í Safnahúsinu hefur yfirskriftina ESB: Frá samvinnu til miðstýringar og er hann góð upphitun fyrir okkar fund og hvetjum við eindregið til þess að fjölmennt verði á hann. Það skiptir máli að allir baráttufánar verði dregnir að húni!
Hér er slóð á fund ÖJ sem gjarnan má dreifa sem víðast auk þess að fólk boði komu sína á þann fund: https://fb.me/e/3oqcC2g4f
Heimasiða Ögmundar er ogmundur.is en þar segir einnig frá þeim fundi.
Þau sem eru á öðru pólitísku róli en við en sammála okkur varðandi ESB aðild fagna tilkomu okkar félags, vel vitandi að því er ekki stefnt gegn öðrum félögum sem þátt taka í baráttunni gegn ESB-aðild Íslands. Mikilvægt er að allt pólitíska litrófið komi að þeirri baráttu.
Til undirbúnings Til vinstri við ESB var send út stefnuyfirlýsing og er boðað til þessa fundar á grunvelli hennar:
Á laugardagsfundinum á Horninu verður lögð fram tillaga um stjórnarmenn og hefur verið reynt að horfa til þess að hún gæti orðið sameinandi á vinstri kantinum auk þess sem kynjahlutföll og búseta var höfð í huga.
Ef okkur auðnast að verða sammála um það sem lagt verður fram væri komið að meginverkefni fundarins, en það er að leggja á ráðin um baráttuna framundan, hvernig safna megi liði og koma okkar sjónarmiðum á framfæri.
Hugmyndin er sú að vilji menn gera breytingar á stefnu, lögum eða mannvali til forystu bíði það aðalfundar sem haldinn verði síðar á árinu.
Gangi þetta eftir gætum við tekið flugið saman strax frá fyrsta degi.
Það sem máli skiptir nú er að finna fyrir styrk hvert frá öðru og láta þjóðfélagið heyra strax frá fyrsta degi að vinstri menn ætla ekki að láta draga sig inn í Evrópusambandið sem gerst hefur sífellt miðstýrðara, markaðssæknara og hervæddara. Fyrirsjáanlegt er framhald á þeirri þróun.
Við þurfum að láta það skiljast að vinstri menn vilja fjölþjóðlega samvinnu en aðeins á friðsamlegum, lýðræðislegum og uppbyggilegum nótum. Upp á slíkt býður Evrópusambandið hins vegar ekki eins og við þekkjum.
Undirbúningshópur

