Lög Til vinstri við ESB

1. grein.

Samtökin heita Til vinstri við ESB.

2. grein.

Markmið Til vinstri við ESB er að vinna gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið sem og óæskilegum áhrifum ESB á íslenskt samfélag. Þetta verði gert í samræmi við stefnuyfirlýsingu samtakanna.

3. grein.

Aðalfundur samtakanna skal haldinn eigi síðar en í lok október.

4. grein.

Stjórn samtakanna skipa 17 einstaklingar sem kjörnir eru á aðalfundi og þar af 5 aðalmenn í framkvæmdastjórn og þrír varamenn í framkvæmdastjórn. Aðalfundur kýs fyrst formann og síðan varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda sem öll eiga sæti í framkvæmdastjórn. Ennfremur skal kjósa 2 skoðunarmenn reikninga.

5. grein.

Tekjur Til vinstri við ESB eru fengnar af félagsgjöldum og einstökum styrkjum. Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins í samræmi við ákvörðun aðalfundar ár hvert. Stjórn er heimilt að hrinda í framkvæmd fjársöfnun í nafni samtakanna.

6. grein.

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar skulu lagðir fram endurskoðaðir og undirritaðir af skoðunarmönnum og stjórn á aðalfundi samtakanna.

7. grein.

Stjórn er heimilt að skipa nefndir, svæðisráð eða annarskonar starfshópa til að vinna að einstökum verkefnum.

8. grein.

Til aðalfundar skal boðað með minnst 10 daga fyrirvara. Lögum samtakanna er einungis heimilt að breyta á aðalfundi og þarf til þess að minnsta kosti 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillögum til lagabreytinga skal skila viku fyrir aðalfund til stjórnar og skal stjórn geta þess tímanlega, ef lagabreytingatillaga hefur komið fram.