Til Vinstri við ESB og næstu vikur
Baráttan fer að ná hámarki
Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer nú að ná hámarki. Til Vinstri við ESB hefur á síðastliðnum mánuðum haldið upplýsandi fundi um málefni tengdum ESB og áhrifum þess á Ísland ef að inngöngu kæmi sem og áhrifum aðlögunarferlisins á stofnanir og samfélagið, þó ekki nema ef niðurstaðan yrði já í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Margvíslegir upplýsingafundir hafa verið haldnir, eins og hvað varðar Evrópusambandið og Ísrael, hervæðingu Evrópusambandsins, um sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál og um stofnanir sambandsins og uppbyggingu þess. Til Vinstri við ESB hefur verið virkt á Facebook og deilt þar greinum þeim sem eru í senn upplýsandi og eru félagslega þenkjandi á breiðum grundvelli. Þá hefur félagið staðið að myndbandagerð þar sem einstaklingar hafa tjáð hug sinn um Evrópusambandið og reynt á lifandi og upplýsandi hátt að skýra út áhrif inngöngu, jafnvel umsóknarferlisins á íslenskt samfélag.
Um helgina var haldinn fundur sem sneri að upplýsingafrelsi innan ESB og hvernig sambandið er að vígbúast á ótrúlegum skömmum tíma. Var fundurinn í fundarröð Ögmundar Jónassonar sem hann nefnir ,,Til róttækrar skoðunar“. Nokkur nöfn sem vinstri menn kannast við héldu erindi í gegnum myndband en þar má nefna Thomas Fazi, Husseyni Dogru og Alfred de Zayas. Þá ávarpaði Jeffrey Sachs fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Hér má lesa hugleiðingar Ögmundar um fundinn: https://www.ogmundur.is/is/greinar/upplysandi-fundur-um-esb-vigvaedingu-og-ritskodun
Það er langt síðan að sú hreyfing fólks sem telst til vinstri í pólitík, hvort sem það skilgreinir sig til félagshyggjufólks, sósíalista, friðarsinna eða hvaðeina hefur þurft að taka jafnmikið höndum saman til verndar fullveldi landsins og því valdahlutfalli sem raskast með framsali þess til yfirþjóðlegs ríkjasambands. Efni þess fundar sem haldinn var um helgina ristir einmitt inn í hjarta þess vinstri sem við þekkjum; friðelskandi fólks sem hafnar hervæðingu og heimsvaldahyggju gömlu nýlenduveldanna sem ráða ríkjum í Evrópusambandinu.
Það þarf alla á dekk. Fólk getur skrifað pistla eða skoðanagreinar. Fólk getur talað við vini sína, kunningja og vinnufélaga. Fólk getur mætt á opna fundi allra þeirra sem halda fundi þessa daganna um þessi mál og tekið til máls út frá þeirri þekkingu sem það hefur. Það er hægt að gera margt. Það eru ekki nema tæpar þrjár vikur til stefnu og þessi barátta skal vinnast.



