Til hamingju með 1. maí - alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins!
Fjölmennum í kröfugöngu og verum Til Vinstri við ESB
Til Vinstri við ESB óskar landsmönnum öllum og verkafólki um allan heim gleðilegs baráttudag verkalýðsins. Ef ekki hefði verið fyrir stritandi alþýðu vor lands hefði sjálfstæðisbaráttan verið hálfu þyngri og þau réttindi sem áunnust þegar leið á sjálfstæðisöldina voru vegna óstöðvandi baráttuanda vinnandi fólks fyrir bættum réttindum og kjörum fyrir land og lýð. Það er það því vel við hæfi að gefa Jóhannesi úr Kötlum orðið sem orti þetta ljóð í tilefni að sjálfstæði Íslands 1944 og á vel við í tilefni að 1. maí.
Lands míns föður
Land míns föður, landið mitt,
laugað bláum straumi:
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
— ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
Hvíslað var um hulduland
hinst í vestanblænum:
hvítan jökul, svartan sand,
söng í hlíðum grænum.
Ýttu þá á unnarslóð
Austmenn, vermdir frelsisglóð,
fundu ey og urðu þjóð
úti í gullnum sænum.
Síðan hafa hetjur átt
heima í þessu landi,
ýmist borið arfinn hátt
eða varist grandi.
Hér að þreyja hjartað kaus,
hvort sem jörðin brann eða fraus,
— flaug þá stundum fjaðralaus
feðra vorra andi.
Þegar svalt við Sökkvabekk
sveitin dauðahljóða,
kvað í myrkri um kross og hlekk
kraftaskáldið móða.
Bak við sára bænarskrá
bylti sér hin forna þrá,
þar til eldinn sóttu um sjá
synir vorsins góða.
Nú skal söngur hjartahlýr
hljóma af þúsund munnum,
þegar frelsisþeyrinn dýr
þýtur í fjalli og runnum.
Nú skal fögur friðartíð
fánann hefja ár og síð,
varpa nýjum ljóma á lýð
landsins, sem vér unnum.
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.


