Stefnuyfirlýsingin og áminning
Kæru samherjar.
Í ákafa okkar við að boða til stofnfundar „Til vinstri við ESB“ í síðasta bréfi láðist okkur að láta stefnuyfirlýsinguna fylgja með, þrátt fyrir að vísað væri í hana. Biðjumst við velvirðingar á þeim mistökum, en hér bætum við úr því enda er hún grunnurinn að því öfluga starfi sem framundan er.
Hér má nálgast stefnuyfirlýsinguna í heild sinni
Í stefnunni er kjarni málsins dreginn fram: Að Ísland eigi að skipa sér í sveit með friði, lýðræði og mannúð en hafna þeirri þróun sem hverfist um markaðsvæðingu og vígvæðingu Evrópusambandsins. Við viljum alþjóðlegt samstarf á okkar forsendum, ekki valdboð.
Áminning um morgundaginn
Við minnum svo á að við hittumst á morgun, laugardag, kl. 14:00 á Horninu í Hafnarstræti. Þar munum við formlega stofna samtökin, kjósa stjórn og leggja línurnar fyrir baráttuna gegn inngöngu í ESB.
Fyrir þau ykkar sem vilja hita upp fyrir átökin hvetjum við ykkur eindregið til að mæta fyrst á fund Ögmundar Jónassonar í Safnahúsinu við Hverfisgötu kl. 12:00. Sá fundur er þörf áminning um hvernig ESB hefur þróast frá samvinnu til miðstýringar.
Sameinumst strax frá fyrsta degi. Tökum slaginn fyrir fullveldið og velferðina – vinstra megin!
Sjáumst á morgun.
Undirbúningshópur

