Laugardagsfundir vinstri manna gegn ESB-aðild
Vinstri menn standa sameinaðir gegn frekari aðkomu Evrópusambandsins á Íslandi og eru virkir í nei-hreyfingunni.
Tveir fundir voru haldnir í gær laugardag sem snéru að Evrópusambandinu og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Fyrri fundurinn hófst klukkan 12 á veitingastaðnum Horninu og var á vegum Ungra Vinstri grænna og Roða, ungliðahreyfingu Sósíalistaflokks Íslands. Frummælendur voru þau Jökull Sólberg Auðunsson sem fjallaði um efnahagsmálin, Sveinn Rúnar Hauksson sem fjallaði um hernaðarmál sambandsins og nátengingu Evrópusambandsins við Ísrael og síðast en ekki síst Silja Sóley Birgisdóttir sem talaði um hvað eðli Evrópusambandsins væri og þeir ómöguleikar sem bíða Íslands við inngöngu í sambandið. Við komum til með að fjalla frelar um ræður þeirra síðar.
Síðari fundur dagsins var á vegum Sósíalistaflokks Íslands sem bauð Kareni Sunds, sérfróðum Evrópusambandsandstæðing til landsins til að halda erindi á vegum flokksins. Fór Karen vítt og breytt um völlinn og talaði meðal annars áhrif Evrópusambandsins á vinnumarkaðsmálin í Danmörku, afhverju dönsk þjóð forðast evruna eins og heitann eldinn, um hernaðarmálin og útgjaldaaukningu sambandsins til hernaðarbrasks.



