Kæru félagar
Ég óska okkur öllum til hamingju með niðurstöðu þjóðarinnar þann 29. ágúst. Sömuleiðis vil ég þakka ykkur öllum fyrir góðan stuðning og frammistöðu í baráttunni fyrir okkar málstað.
Nú leyfum við okkur að fagna unnum sigri en samtökin okkar munu samt halda vöku sinni og berjast áfram gegn ESB-væðingu Íslands í hvaða mynd sem hún birtist næst.
Á næstu vikum leggjum við á ráðin um næstu skref.
Með bestu þökkum og góðri kveðju,
f.h. framkvæmdastjórnar Til vinstri við ESB
Þorsteinn Bergsson, formaður


