Hervæðingin og ESB
Fundur um hervæðinguna og ESB á Þjóðminjasafninu
Til Vinstri blæs til fundar um þá staðreynd að Evrópusambandið er smátt og smátt að sameinast undir eina utanríkisstefnu meðfram varnarmálum. Fundinum stýrir Margrét Pétursdóttir og frummælendur verða þau Steinunn Þóra Árnadóttir, Haraldur Ólafsson og Tinna Þorvalds Önnudóttir.
Við hvetjum alla okkar félaga að mæta því þetta er málefni sem snertir okkur sem til vinstri erum djúpt. Ísland á að vera um ókomna tíð herlaust land, laust við allar þrætur stórveldanna og taka stöðu með þeim sem veikast standa.
Gleymum því ekki að við erum evrópusinnar en um leið andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Ísland utan ESB, vinstra megin!


