Fréttatilkynning: Reynsla Íra af ESB
Hádegisfundur 20. ágúst með fyrrum þingmönnum Írlands
Á opnum hádegisfundi fimmtudaginn 20 ágúst munu Patricia McKenna, fyrrum þingmaður á Evrópuþinginu og Thomas Pringle, fyrrum þingmaður á írska þinginu, kynna reynslu Íra af samningum Írlands við Evrópusambandið einkum á sviði sjávarútvegsmála.
Í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Íslendingar skuli óska eftir aðild að Evrópusambandinu er því haldið fram að unnt væri að ná ásættanlegum sérsamningum til frambúðar við Evrópusambandið um mikilvæg hagsmunamál og er þar einkum horft til sjávarútvegsmála. Er svo að skilja að um það megi semja að Íslendingar yrðu undanþegnir því um alla framtíð að þurfa að hlíta sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins.
En hvað kennir reynslan um slíka samninga? Á fundinum munu stjórnmálamennirnir tveir Patricia McKenna og Thomas Pringle sem bæði hafa mikla reynslu á þessu sviði, greina frá reynslu Íra.
Fundurinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins (gengið inn frá Suðurgötu) og hefst hann klukkan tólf og stendur í klukkutíma.
Fundurinn er opinn og öll velkomin.
Nánar um frummælendur:
Patricia McKenna er þekktur írskur mannréttindalögfræðingur og einarður umhverfissinni. Hún sat á þingi Evrópusambandsins frá 1994 til til 2004 og var um skeið varaformaður umhverfissinna á þinginu, það er græna flokkahópsins þar.
Patricia McKenna hefur sótt mál fyrir dómstólum þar sem hún kvað það ekki vera í samræmi við lög að nýta skattfé borgaranna til einhliða áróðurs í þjóðaratkvæðagreiðslum um málefni runnin undan rifjum Evrópusambandsins.
Patricia McKenna þekkir mjög vel til þess hvernig írskir landbúnaðar- og sjávarútvegshagsmunir hafa verið fyrir borð bornir í Evrópusambandinu og hvernig samningar sem írsk stjórnvöld hafa gert við ESB til varnar þessum hagsmunum hafa ekki staðist.
Thomas Pringle sat á írska þinginu frá 2011 til 2024, og átti hann á þessum árum bæði sæti í sjávarútvegsmála- og landbúnaðarnefnd þingsins svo og í dómsmálanefnd. Hann hefur verið gagnrýninn á miðstýringu frá Brüssel og hefur hann meðal annars farið með mál fyrir Evrópudómstólinn þar sem hann hefur fært rök fyrir því að ýmsar reglugerðir Evrópusambandsins í samræmingarátt séu utan lögbundinna valdheimilda.
Thomas Pringle er frá Killybegs sem hefur stærstu sjávarútvegshöfn Írlands. Hann hefur starfað við vinnslu sjávarafurða og þekkir vel til sjávarútvegsmála og hvernig þeim hefur reitt af innan ESB.
Frummælendur munu gefa kost á viðtölum eftir fundinn í Þjóðminjasafninu. Sé áhugi á viðtölum á öðrum tímum, hvort sem er fyrir eða eftir fundinn, verður hægt að leita milligöngu hjá Þorleifi Gunnlaugssyni sími 8204020, netfang thorleifur.gunnlaugsson@gmail.com og Ögmundi Jónassyni 8946503, netfang ogmundur@ogmundur.is


