Fréttatilkynning
Stofnfundur samtakanna TIL VINSTRI VIÐ ESB hafnar aðild að Evrópusambandinu - fylgjandi samvinnu – gegn hernaði og auðhyggju.




Samtökin Til Vinstri við ESB voru stofnuð í dag en markmið þeirra er að standa gegn tilraunum til að innlima Ísland í Evrópusambandið.
Tugir manna sóttu stofnfundinn og fjöldi fólks tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Heimasíða hefur verið sett á laggirnar og unnið er að uppsetningu hennar.
Samtökin byggja á svohljóðandi stefnuyfirlýsingu sem samþykkt var samhljóða á fundinum:
Samtökin vilja að Ísland leggi lóð sín á vogarskálar friðar, lýðræðis og mannúðar og beiti sér jafnframt gegn arðráni nýlenduvelda, bæði gamalla og nýrra.
Fámenn þjóð getur gegnt þýðingarmiklu hlutverki í veröld þar sem nýlendustefna sækir í sig veðrið sem aldrei fyrr og ófriðarblikur eru á lofti.
Við leggjum upp úr alþjóðlegu samstarfi á sviði vísindarannsókna, menningar og mennta og viljum styrkja og efla þær alþjóðlegu stofnanir sem ætlað er að sinna slíku hlutverki.
Sérhverri þjóð ber að horfa til þess hvar hún geti best orðið að gagni í samfélagi þjóðanna. Íslendingar hafa getið sér gott orð fyrir framlag á sviði jafnréttis- og annarra mannréttindamála, hafréttarmála, eldfjallarannsókna og vinnslu grænnar orku svo nokkrir þættir séu nefndir um uppbyggilegt og mikilvægt starf í alþjóðlegri samvinnu.
Samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði (EES) hefur tvímælalaust orðið óhagstæðari með þeim breytingum sem hann hefur tekið frá því hann var undirritaður á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar – var hann þó alla tíð gagnrýni verður. Þeir fyrirvarar sem samningamenn Íslands reyndu að setja til varnar stjórnarskránni og sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar hafa verið látnir víkja hver á fætur öðrum. Það sem átti að verða samningur hefur orðið að einhliða valdboði. Fyrir bragðið hefur Ísland jafnt og þétt sogast inn í sífellt harðskeyttari, ágengari og miðstýrðari markaðsvæðingu Evrópusambandsins. Fulltrúar fjármagnsafla hafa fagnað þessari þróun og þá sérstaklega hve auðvelt atvinnurekendum hefur reynst að skáka réttindalitlu verkafólki landa á milli sjálfum sér til ávinnings. Innviðir samfélaganna hafa hinsvegar ekki boðið verkafólk velkomið og hefur fylgifiskur þessara fólksflutninga á forsendum fjármagnsins þess vegna oftar en ekki leitt til aukinnar misskiptingar. Evrópusambandið stefnir hraðbyri í átt til vígvæðingar og hafa íslensk stjórnvöld látið berast með þeim straumi. Evrópusambandið og NATÓ hafa orðið við kröfu hergagnaiðnaðarins um stóraukin útgjöld til hernaðar og hefur sjaldan verið eins brýnt og nú að friðelskandi fólk segi sig frá stríðsöflunum. Evrópskur her er handan við hornið og verða Íslendingar í fullri alvöru að spyrja sjálfa sig hvort þeir vilji búa börnum sínum og samfélagi það hlutskipti til framtíðar að þjóna undir vopnum evrópsku herveldi eða hvort þeir vilji gerast málsvarar friðar í heiminum. Þetta er raunveruleg spurning sem Íslendingar standa frammi fyrir. Við munum beita okkur af alefli fyrir því að þjóðin hafni aðild að Evrópusambandinu.
Ísland utan ESB – Vinstra megin!
Framkvæmdastjórn samtakanna skipa:
Formaður - Þorsteinn Bergsson, Egilsstaðir.
Varaformaður - Guðbjörg Sveinsdóttir, Kópavogur.
Ritari - Margrét Pétursdóttir, Hafnarfjörður.
Gjaldkeri - Ágúst Valves Jóhannesson, Kópavogur.
Meðstjórnandi - Jökull Sólberg Auðunsson, Reykjavík.
Til vara:
Bjarni Harðarson, Selfoss.
Þorleifur Gunnlaugsson, Hveragerði.
Sjöfn Ingólfsdóttir, Reykjavík.
Aðrir í aðalstjórn:
Anna Gunnlaugsdóttir, Reykjavík.
Árni Daníel Júlíusson, Reykjavík.
Ásdís Helga Jóhannesdóttir, Kópavogur.
Baldvin H. Sigurðsson, Akureyri.
Guðmundur Auðunsson, Bretland.
Hjálmdís Hafsteinsdóttir, Hveragerði.
Sólveig Anna Jónsdóttir, Reykjavík.
Tinna Þorvalds Önnudóttir, Reykjavík
Þórarinn Magnússon, Skagafjörður

