Fréttabréf #4
Fundur um sjávarútvegsmál og segjum nei við hervæðingunni
Á laugardaginn 25. apríl fór fram fundur um sjávarútvegsmál og ESB. Fundurinn fór fram á Akureyri og var mjög fróðlegur og upplýsingagefandi. Fundarstjóri var Jana Ingibjargar Jósepsdóttir og framsögumenn voru þeir Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Mikael Snær Gíslason BSc. í líftækni og fyrrum sjómaðurinn Jón Þór Sigurðarson. Fjölluðu þeir um hverjir möguleikar Íslands væru gagnvart einhverskonar varanlegri undanþágu Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, um hvernig þróun Möltu og sjávarútvegsins hefur verið eftir aðild landsins og um það hvers vegna Noregur væri eins mótfallið inngöngu í Evrópusambandið og raun ber vitni.
Einnig viljum við benda ykkur á nokkrar greinar sem hafa verið útgefnar um þessi mál á síðustu dögum og misserum.
,,Ísland á alltaf að tala fyrir friði og forðast bandalag með þjóðum sem eru að vígbúast.”
Og svo
,,Það er bandarísk herstöð á Miðnesheiði. Enda þótt NATÓ fái að nota hana þá gætu komið upp aðstæður þar sem ESB vildi nýta sér hana en Bandaríkin vildu ekki af einhverjum ástæðum heimila það, hvar værum við þá stödd. Við værum með „samninga“ við báða aðila, skuldbundin báðum en hvort ætti að fara að vilja pabba eða mömmu?”
Hér er útdráttur úr grein Guðmundu G. Guðmundsdóttur um hernaðarmál sem hún skrifaði á Vísi. Það er táknrænt því Til Vinstri við ESB heldur fund um Hervæðinguna og ESB í Þjóðminjasafninu næstkomandi laugardag kl 12. Hér er hlekkur á grein Guðmundu: https://www.visir.is/g/20262875268d/tolum-hatt-og-stolt-um-frid-segjum-nei-vid-hervaedingunni
Þá er athyglisverð grein Ernu Bjarnadóttur hagfræðings sem hefur yfirskriftina ,,Um margt að semja” - eða hvað? Þar bendir Erna aðildarsinnum á það sé vel þekkt að Evrópusambandið veitir ríkjum í aðildarferli frest og/eða sértækar leiðir til þess að aðlagast reglum sambandsins. Slíkur frestur víkur þó ekki frá meginureglunni um að aðildarríki gangist að fullu undir skilmála sambandsins.
Þá er ekki ónýtt að enda á því að benda á grein Tjörva Schiöth á Neistar.is sem hefur þá hreinskiptu fyrirsögn að ,,Evrópusambandið er verulega ólýðræðisleg stofnun”. Fyrir neðan er útdráttur úr greininni og hér er hlekkur: https://neistar.is/greinar/evropusambandid-er-verulega-olydraedisleg-stofnun/
,,Því meira sem maður kynnir sér málið og veit meira um ESB, því augljósara er hversu hörmulegt þetta apparat er. Það sem ESB-sinnar segja um ESB er oftast bara einhver draumsýn sem er ekki byggð á neinum raunverulegum staðreyndum um hvernig þetta stofnanaveldi virkar eða starfar.
Þeir eru eins og költistar (ESB-költistar), fyrir þeim er ESB einhverskonar trúarbrögð. Þeir trúa á einhverjar fagrar hugmyndir um átrúnaðargoðið, að þetta sé eitthvað yfirnáttúrulegt afl sem muni leysa öll okkar vandamál, hugmyndir sem hljóma kannski fallega á pappír, en hafa enga stoð í raunveruleikanum.”
Að lokum viljum við minna enn og aftur á fund Til Vinstri við ESB um Hervæðinguna og ESB í Þjóðminjasafninu kl 12, laugardaginn 2. maí. Tilvinstri.is auglýsir þann viðburð svo nánar.



