Fréttabréf #3
Fréttir af fundum félagsins
Til Vinstri við ESB hélt nýverið tvo fundi um landbúnaðarmál. Fyrri fundurinn var haldinn í Tryggvaskála á Selfossi 15. mars en hann var vel sóttur og heppnaðist vel. Frummælendur voru þau Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Þorsteinn Ólafsson líffræðingur og formaður samtakanna, rithöfundurinn og fyrrum bóndinn Þorsteinn Bergsson. Töluverðar umræður sköpuðust en bændur af Suðurlandi fjölmenntu á fundinn og ríkti mikil baráttuandi gegn mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Síðari fundurinn var haldinn í Kakalaskála í Skagafirði og voru frummælendur þeir sömu og var þar sömuleiðis mikill samtakamáttur og ágætur fjöldi.
Þá verður haldinn fundur sjávarútvegsmál og ESB næstkomandi laugardag á Hótel KEA á Akureyri. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 14. Frummælendur verða Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Jón Þór Sigurðarson fyrrverandi sjómaður, Mikael Snær Gíslason B.Sc í líftækni en Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri stýrir fundinum. Hvetjum við alla sem heimagengt eiga til að mæta, fræðast og spyrja spurninga.
Á komandi mánuðum munu svo samtökin taka enn frekari þátt í umræðunni um atkvæðagreiðslu um umsókn að Evrópusambandinu. Slíkir fundir sem samtökin hafa haldið eiga að vera öllum til gagns og eru til þess fallnir til að halda niðri þeirri upplýsingaóreiðu sem verður oft til þegar slík stór og umdeild mál eru sett á dagskrá.



