Fréttabréf #2
Stofnun Suðurlandsdeildar og fundur um landbúnaðarmál
Næstkomandi sunnudag, 15. mars, verður efnt til fundar um landbúnaðarmál á Selfossi þar sem jafnframt fer fram formleg stofnun Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB.
Félagar og áhugafólk er eindregið hvatt til að mæta og taka þátt í umræðunni. Mikilvægt er að við fjölmennum og kynnum okkar sjónarmið varðandi íslenskan landbúnað og hugsanleg áhrif Evrópusambandsaðildar.
Hægt er að nálgast Facebook-viðburð fundarins hér og hvetjum við alla til að deila honum áfram: https://fb.me/e/5pfYsPCsU.
Starfshópar Til vinstri við ESB
Þegar er byrjað að mynda starfshópa um ýmislegt sem varðar Ísland og ESB. Við viljum hvetja félaga til að taka þátt í þessum hópum og jafnvel stofna nýja. Þeir sem vilja koma að stofnun nýrra hópa geta gert það í samráði við formann félagsins, Þorstein Bergsson (beintafaugum@simnet.is).
Eftirfarandi hópar og deildir eru komnar á laggirnar:
Suðurlandsdeild: ESB og landbúnaðarmál – Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Ólafsson.
Norðurlandsdeild: ESB og sjávarútvegsmál – Ábyrgðarmaður: Jón Þór Sigurðsson (jonth.nordahl@gmail.com).
Stríð, friður og ESB – Ábyrgðarmaður: Guttormur Þorsteinsson (guttormurinn@gmail.com).
Efnahagsumhverfi Evrópusambandsins – Ábyrgðarmenn: Guðmundur Auðunsson (mummi@btinternet.com) og Jökull Sólberg (jokull@solberg.is).
Eitt og annað
✍️ Að kíkja í pakkann: Jökull Sólberg skrifar grein á Vísi þar sem hann fer yfir hvers vegna ekki sé rétt að Ísland geti litið til fordæma um sérákvæði líkt og Danmörk. „Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst um inngöngu í ESB fremur en að fá að vita hver sérákvæðin verða.“ Lestu greinina hér.
🎞️ Upptaka af tölu Ögmundar: Fundur Ögmundar Jónassonar á Akureyri og formlega stofnun Norðurlandsdeildar fór fram nýlega. Fyrir þau sem misstu af upphafsfundinum okkar þann 10. janúar sl. undir yfirskriftinni „ESB: Frá samvinnu til miðstýringar“, hefur nú verið birt upptaka af fundinum.
📱 ESB og Auðkenni: Jökull bendir á hvernig fyrirtækið Auðkenni hefur þrefaldað starfsmannafjölda sinn til að mæta nýjum og íþyngjandi kröfum frá Evrópu, þrátt fyrir að Ísland hafi verið langt á undan öðrum þjóðum í þessum efnum. Lestu greinina hér.
📢 Fjölmiðlar og afvegaleiðing: Í nýjasta fréttabréfi Ögmundar Jónassonar (7. mars) er fjallað um atkvæðagreiðslu um ESB og þá kröfu að fjölmiðlar upplýsi þegar stjórnmálamenn afvegaleiða umræðuna. Hlekkur á grein.
🚜 Landbúnaðurinn: Erna Bjarnadóttir hefur verið ötull penni að undanförnu og birtir frábærar greinar á Facebook-síðu sinni sem við hvetjum fólk til að kynna sér. Grein í Feyki - og grein í Morgunblaðinu.
📋 Við minnum einnig á að stofnfundargerð samtakanna frá fundinum að Horninu við Hafnarstræti þann 10. janúar hefur nú verið gerð aðgengileg fyrir félagsmenn.
✅ Minnum á að hægt er að skrá sig formlega í samtökin í gegnum netfangið tilvinstri@tilvinstri.is. Við þurfum öll að hjálpast að við að ná utan um umræðuna – deilið endilega efninu sem víðast!



