Fréttabréf #1
Stofnun Norðandeildar Til Vinstri við ESB
Athygli er vakin á því að í framhaldi af opnum fundi á hótel KEA á Akureyri klukkan 14:00 á laugardag um þróun Evrópusambandsins – ESB: Frá samvinnu til miðstýringar - á vegum Ögmundar Jónassonar verður efnt til stofnfundar norðandeildar Til vinstri við ESB á Kaffi Ilmi, Hafnarstræti 107.
Fundurinn á Kaffi Ilmi hefst klukkan 16:15 og verður Þorsteinn Bergsson formaður Til vinstri við ESB fundarstjóri. Hægt verður að fá kaffi og te á staðnum. Reikna má með því að fundurinn á Kaffi Ilmi standi í um klukkutíma.
Núverandi félagar í Til vinstri við ESB og þau sem áhuga hafa á því að gerast félagar eru hvött til þess að mæta á stofnfund norðandeildarinnar.
Sama gildir um KEA fundinn. Reikna má með því að fólk úr öllu pólitíska litrófinu sæki þann fund en mikilvægt er að hann verði sem fjölsóttastur og er nauðsynlegt að allir leggist á eitt um að hvetja fólk til þess að mæta. KEA fundurinn verður sambærilegur fundi sem haldinn var í Safnahúsinu í Reykjavik laugardaginn 10. janúar í aðdraganda þess að Til vinstri við ESB var stofnað. Yfirskriftin var þá sú sama og nú. ESB: Frá samvinnu til miðstýringar.
Reynslan að sunnan var sú að fyrri fundurinn varð til þess að kveikja áhuga margra um að mæta á síðari fundinn. Eins og sjá má á meðfylgjandi auglýsingu verður Guðbjörg Sveinsdóttir fundarstjóri á KEA fundnum en hún er nýkjörinn varaformaður Til vinstri við ESB.
Eitt og annað
🇨🇭 Jacques Baud er svissneskur greinandi alþjóðastjórnmála sem Evrópusambandið hefur bannfært vegna skoðana sinna, gert ókleift að ferðast innan ESB, lokað á bankareikninga hans og fryst eigur. Allt þetta vegna “rangra“ skoðana um Úkraínustríðið. Hlekkur
🚗 Ísland stendur utan tollabandalags ESB og sleppur því við sívaxandi verndartolla sambandsins. Nýlegt dæmi eru allt að 40% tollar á kínverska rafbíla sem leggjast á evrópsk heimili. Hlekkur
🌍 Systursamtökin Heimssýn fjölluðu um stofnun Til Vinstri við ESB. Hlekkur
✅ Nú er hægt að skrá sig formlega í samtökin - ekki bara á þennan póstlista sem er fyrir enn víðari hóp. Um sinn verður þetta einfaldlega í gegnum netfangið tilvinstri@tilvinstri.is.
🤝🏻 Þeir sem vilja leggja okkur lið eru beðnir um að svara þessum pósti. Hvort sem þú ert að skrifa greinar, tala um Evrópusambandið á samfélagsmiðlum eða viljir hjálpa til við hvað sem er, vinsamlegast sendu okkur línu. Við þurfum öll að hjálpast að - ekki síst við að ná utan um umræðuna og miðla sem flestu í þessu fréttabréfi, svo félagar komi auga á það og dreifi því sem víðast.
📋 Fundargerð stofnfundar haldinn að Horninu við Hafnarstræti 10. janúar 2026



