Um nýliðna helgi var haldin aðalfundur Til Vinstri við ESB sem fram fór á veitingahúsinu Horninu í Reykjavík.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi en Þorsteinn Bergsson var endurkjörinn til embættis formanns. Ásamt honum völdust þau Þorleifur Gunnlaugsson, Tinna Þorvalds Önnudóttir, Ágúst Valves Jóhannesson og Hlín Leifsdóttir í framkvæmdastjórn og Bjarni Harðarson, Birna Gunnlaugsdóttir og Karl Héðinn Kristjánsson til vara.
Þá ályktaði aðalfundurinn um lögleiðingu bókunnar 35, almennt um Evrópska efnahagssvæðið og þær breytingar sem hafa orðið á samningnum. Ályktunin var samþykkt samhljóða.
Ályktunin í heild sinni:
Til vinstri við ESB varar við lögbindingu á bókun 35
Aðalfundur samtakanna Til vinstri við ESB fagnar því að þjóðin skuli hafa hafnað aðildarviðræðum við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni 28. ágúst síðastliðinn.
Samtökin eru andvíg aðild að Evrópusambandinu einkum vegna þess hve mjög markaðshyggja er höfð þar að leiðarljósi auk þess sem áhrifa hergagnaiðnaðar gætir í sífellt meira mæli í allri stefnumótun.
Evrópusambandið hefur tekið grundvallarbreytingum í seinni tíð og stefnir hratt í að verða miðstýrt stórríki sem þrengir að lýðræði í aðildarríkjunum.
Samningurinn um hið Evrópska Efnahagssvæði, EES, ber þessari þróun einnig glöggt merki. Hann gerist sífellt ásælnari um inngrip í skipulag innviða samfélagsins. Samningamenn Íslands um EES á árunum 1992 og 1993 voru vel meðvitaðir um hættuna sem myndi stafa af því að verða við kröfum Evrópusambandsins sem þá þegar voru fyrir hendi um að EES ríkin undurgengjust Evrópurétt að fullu enda hefði stjórnarskrá Íslands ekki leyft slíkt. Við þetta varð til bókun 35 sem var hugsuð sem ólögbundið lögskýringarákvæði sem gæfi Íslendingum rétt til þess að halda í sínum höndum úrskurðarvaldi um álitamál sem upp kynnu að koma um hvar mörkin lægju á milli Evrópuréttar og íslenskra laga.
Lögleiðing á bókun 35 myndi breyta þessu lögskýringarákvæði í lagabókstaf og þrengja þar með að sjálfsforræði íslenskra stjórnvalda. Sterk rök hafa verið færð fyrir því að slíkt myndi ekki, nú frekar en áður, standast stjórnarskrá Íslands.
Samtökin Til vinstri við ESB beina þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnarinnar að draga til baka frumvarp um lögleiðingu á bókun 35 en ella felli Alþingi frumvarpið.



